....

hææææjjjj littli!;)

22.11.2007 22:33:42 / gulla:)

.....

Ég veit, ég veit... ég þykist alltaf vera alveg agalega upptekin þannig að ég hafi engann tíma í þetta blogg! Veit ekki  alveg afhverju ég byrja þá alltaf aftur..
En jæjja, þessi vika er að verða búin þannig að ég get farið að anda rólega, var alveg heilt helfvíti. Alltof mikið að gera hjá  mér! En þetta er núhh að skána :)
Svo á morgun verður sovikvöld með unglingadeildinni sem verður ÆÐI! :D hlakka alveg ótrúlega mikið til, en kvíði samt eiginlega svolítið fyrir líka, eða þú veist.. er hálf hrædd við að eiga að bera alla ábyrgðina.
En annas þá eru bara prófin alveg að fara að skella á og önnin brátt á enda! :O er meira að segja nú þegar búin með eitt lokapróf!
Ég verð að vinna hjá póstinum um jólin, vona að það verði fínt. Verð samt alveg líka eitthvað uppí rækt, kemur bara í ljós hvað það verður mikið.

Vá samt, jólin mín eiga eftir að vera svo asnaleg! Pabbi verður kannski að vinna á Þorláksmessu þannig að það gæti verið að það bara yrði engin skötuveisla. Svo gæti verið að hann yrði ekki búinn að vinna fyrr en klukkan 8 á aðfangadag! :S
Ekki það að ég er svosem alveg sorglega lítið jólabarn í mér, finnst þetta eiginlega allt alveg óþarfa vesen eða svona margt í kringum það. Finnst reyndar alltaf jafn gaman að gera kort og pakka inn pökkum og þar með er það upp talið!.

En allavega, ég ættla að halda áfram að rugglast eitthvað hérna. Váhh klukkan líka orðin hálf ellefu þannig að maður þarf bara að fara að sofa fljótlega!

Bless;*


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 19:20:09 / gulla:)

.....

Jáhh fyrirgefðu, ég bara hef haft í nógu að snúast!

Núna sti ég til dæmis uppí rækt og ég get ekki hitt á rétta stafi! þarf alltaf að skrifa allt geðveikt oft eitthvað:S ég nefnilega er búin að vera á fullu að skúra og svona og er komin með geðveikt eitthvað skrítið í puttana af að vinda og meira að  segja með rúsínur á puttunum! :';)

En vitið þið, veit samt ekki hvernig það á eftir að ganga hjá mér að reyna að halda tvem síðum gangandi! gleymi þessari líka alltaf!
Finnst geðveikt notó að vinna :D alltof langt síðan ég hef unnið, er ekki frá því að ég sé bara farin að sakkna ræktarinnar! ;)

Núna er skólinn bara alveg að verða búinn8| geðveikt spes sko! finnst skólinn varla byrjaður, en ég svona hlakka ekki beint til að fara í öll þessi helf próf sko! er geðveikt hrædd um að falla í einhverju, en jæjja. Það kemur bara í ljós :) Hrönn námsráðgjafi ættlar líka eitthvað að reyna að hjálpa mér og svona, þetta gæti nú alveg átt eftir að ganga skárr en áður ha! Annas þá var Helga frænka að bjóða mér að koma til hennar eftir áramót og búa hjá henni á egs og fara í ME. Held ég ættli samt að vera bara áfram í VA, finnst það alveg ágætt sko, fínir og sanngjarnir flestir kennararnir. Er líka búin að heyra mikið um að kennararnir hérna séu betri heldur en í ME. En ég auðvitað veit ekkert um það án þess að prófa það! :)

Það er líka alveg nóg að gera hjá mér í öllu unglingardeildar tengdu dæmi! :) alveg bara endalaust nóg sko! :) sem er mjög gott, en svo kemur Andri  eftir áramótt og þá verðurþetta allt annað! :)

En allavega, ég ættla að reyna að nýta tímann hérna í eitthvað gáfulegra heldur en að sitja bara og blogga! :)

bless! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 09:45:42 / gulla:)

komin aftur! :)

Halló Halló! :D

ég er komin aftur! ;)
núna sit ég uppí skóla og verð í gati þangað til klukkan tólf, gratís! að sjálfsögðu alltaf gaman að sitja uppí skóla...

En annas þá er ég eiginlega búin að gera frekar fátt, bara skólinn og unglingadeildin, annas þá er ég líka í leiklistahópnum hérna í va þannig að það er bara alveg yfirdryfið nóg að gera!
Verð samt að viðurkenna að maður er alveg að verða kominn með ógeð af skarðinu, rútunni og bara þessu dæmi!;) een æjji samt, finnst agalega gott að koma og knúsa snjólf;* veit ekki hvort maður myndi höndla það að vera á vist sko... kemur í ljós:)

Sit og er að klusta á Zúber, sem er bara alveg...úff þau eru aðeins steiktari en venjulega sko! haha :';)

æjjh allavega þá er ég farin, ég er svona aðeins að vinna í því að fara að slökkva á blessuðu útvarpinu og halda áfram með Njálu, gengur alveg furðulega illa að hlusta á útvarpið og lesa fornsögu.. bara skil ekkert í þessu! ;)

bless!


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 20:56:29 / gulla:)

....

jæjja held að það sé kominn tími til:)

núna ættla ég bara að hætta formlega með þessa síðu!;)

byrja samt kannski aftur seinna...bless;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 10:29:28 / gulla:)

...

jæjja:) held að það sé spurning um að fara að standa sig örlítið betur í þessu bloggi:)
Sit núna bara uppí skóla og bíð eftir öllum krökkunum..það semsagt eru allir nema ég í félagsfræði 103 og svo erum við að fara í busun klukkan 11:D spurning hvað verði eiginlega gert við okkur...er orðin geðveikt spennt að vita hvað verður gert, en allavega..held þetta verði svolítið ógilegt þannig ég ættla að reyna að fá laufey til að flétta mig svona afþví að ég sé hún er að koma:) blogga meira fljótlega;) bless;*


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 11:00:40 / gulla:)

bíða bíða bíða..

úff hvað þetta á eftir að verða alveg yndislega og gefandi skólavetur..held að ég sé í meira af götum heldur en tímum! þannig að maður á alltaf eftir að þurfa að bíða alveg geðveikt eftir rútunni og svona, ættli þetta skáni samt ekki fljótlega..þá getur maður alltaf nýtt eyðurnar til að læra heima og svona:) ég er allavega byrjuð í va og lýst alveg þokkalega á  þetta svona, er með 19 einingar og má helst ekki fá fleiri þannig að  ég verð bara að sætta mig við það;)
sit  núna geðveikt einmanna uppá bókasafni til að ná netinu, Það eru nefnilega ekkert allir sendarnir  orðnir virkir þannig að maður getur bara verið á netinu sumstaðar..þetta er alveg súper:)
er svon að verða búin að redda mér bókum, þetta er allt að koma..og núna þarf ég bara að bíða  í klukkutíma í viðbót eftir næstu rútu:) sem er náttúrulega bara sniðugt, er að hugsa um að skreppa aðeins niðrí tónspil og kannski kaupa mér njálu, það er að segja ef ég finn magnús ekki fljótlega...
blogga kannski einhvertíman aðeins lengra...er bara svöng þannig að ég nenni ekkert að hanga hér það sem eftir er dags;) heyrumst;*

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 15:52:46 / gulla:)

.....

jæjja krakkar, ég held að það sé kominn tími á blogg hérna. Svona áðurenn þið missið ykkur alveg í commentunum;)

Annas þá hef ég í rauninni ekkert að segja ykkur, er búin að vera hálf slöpp núna síðan á miðvikudaginn, fór heim úr vinnunni í dag og svona....Er bara eitthvað svo þreytt en get samt enganvegin sofnað:/ þannig að ég sit bara og bíð eftir að einhver komin inná msn:)
Það á  að ferma öbbu á morgun þannig að það er allt á miljón hérna, allir niðrí safnaðarheilmili að vesenast nema ég og hellingur af fólki á leiðinni...einhverjir sem ættla að koma í kvöld en svo eru líka nokkrir sem koma bara á morgun;)
Svo er skólinn bara að byrja og allt að verða svona þokkalega eðlilegt, en samt ekki afþví að það verður allt geðveikt öðruvísi núna!;) en ég er hætt að bulla...bless;*


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 12:12:56 / gulla:)

versló!;)

jeyjj, ég er kannski ekkert að taka þessa verslunarmanna helgi með einhverju trompi, en mér finnst þetta samt fínt:) er til dæmis búin að vera mjög mikið heima og örugglega búin að hitta bróðir minn meira heldur en alla seinustu viku! og það skiptir mikklu máli fyrir mig;)
ég er samt ekkert búin að vinna mikið...er að fara að vinna klukkan eitt í dag og vann bara smá í gær:) er búin að vera alveg ótrúlega mikið í tölvunni. Er tildæmis alveg að verða búin að skrifa upp dagbókina frá gufuskálum, það er búið að taka virkilega langan tíma fyrir mig;) ohh, mig langar svo í útilegu að ég er gersamlega að farast! ég veit reyndar að ég svaf í tjaldi og allt það á landsmótinu en það var samt ekkert svona alvöru útilega fannst mér;) mig langar í útilegu með Bjarney og Hólmari svona einsog útilegur eiga að vera:( lengst útí rassgati og nákvæmlega ekkert að gera! ahh!:) en vá, ég komst að því í gær, að ég er alveg mjög heimsk! ég, mamma og abba fórum semsagt í trivia, ég vil taka það fram að þær eru búnar að sitja og skoða spurningabunkann þannig að ég var gersamlega að skíta á mig þarna og grúttapaði að sjálfsögðu;) en það er svosem fínt...
vá samt hvað mér finnst aldrei vera neinn online á msn afþví að þráinn er ekki heima:/ þetta er orðið vandamál og ég held ég sé orðin ekkert lítið uppáþrengjandi með smsum og svona:') en jæjja mér er svosem eiginlega alveg sama!:)

en allavega, er farin...heyrumst;*


» 21 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 19:13:31 / gulla:)

...

úff, ég er svo ekki tæknileg. Hann bróir minn sem er hérna sérstakur aðstoðarmaður minn við þetta blogg vildi endilega setja inn mynd, en mér er það lífsins ómögulegt:/ úff ég er svo tæknitreg! En annas þá er ég bara heima í rólegheitunum, er búin að vinna í dag og er ekkert að fara að vinna fyrr en 1 á morgun. Mitt plan fyrir verslunarmannahelgina er nú eiginlega bara að liggja heima í leti og vinna;)
Annas þá er ég, merkilegt nokk farin að hlakka til að byrja í skólanum. Flestir sem hlakka til eru að hlakka til þess að byrja á einhverju nýju, kynnast nýju fólki og svona...en nei ekki ´hún ég....ég er í slvörunni farin að hlakka til að fara í skólann sjálfann, Læra og svona:) ég er til dæmis varla búin að opna bók allt sumarfríið og er eiginlega farin að hlakka til að fara í skólann og lesa og svona aftur;) ættli það jafni sig samt ekki um leið og maður byrjar;)

Allavega þá ættla ég að fara að gera eitthvað annað...vona að það verði settar inn myndir fljótlega...langar svo að sjá myndir frá gufuskálum:) en allavega...bless;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 22:33:01 / gulla:)

....

ég ættla að hefja þetta blogg á því að segja ykkur hvað Þráinn er erfiður, núna þarf ég að blogga afþví að honum leiðist svo á spáni, en ég bara hef ekkert að segja:)

Jú, ég ætti kannski að taka það fram í upphafi að svefngalsinn er í alveg þokkalega háu stigi á þessum bænum!;) mamma og abba eru að fara til ak á morgun, þannig að ég þarf að vakna með systkynum mínum og koma þeim til steinunnar frænku áðurenn ég fer að vinna:) jeyjj...og það er rigning. En núna er ég alvarlega farin að hugsa um að fjárfesta í einu svona littlu sktifborði inní herbergið mitt, herbergið mitt er samt svo lítið að það höndlar það varla:/ en ég verð samt eiginlega að fá eitthvað borð:) Við vorum samt að fá helling af spólum og fötum og einhverju svona dóti afþví að íris er að fara að flytja til dk og er að reyna að losna við sem mest af dtraslinu sem hún á:) sniðugt hjá henni;) og af því tilefni þarf ég eiginlega að fara að taka til í fataskápnum mínum, er líka öðrumeginn með bara svona ruslahaug sem ég er að reyna manna mig uppí að ráðast á, en það gengur eiginlega frekar hægt:/ ég er ekki ennþá búin að skrifa upp allt dæmið frá gufuskálum:/ nenni þessu ekkert;) var líka bara að klára að sækja möppuna mína áðan þannig að á mprgun´get ég sest niður við að adda öllum inná msn;) jeyjj!

en allavega, ég ættla að drulla mér í sturtu og síðan í bólið:D heyrumst;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 21:41:16 / gulla:)

gufuskálar!:)

jæjja, ættli það sé ekki kominn tími á blogg á þessum bæ:) er eiginlega ekki búin að hafa tíma til að blogga...er ekki einusinni búin að skrifa upp alla dagbókina frá gufuskálum, er eiginlega bara búin að vera að vinna síðan ég kom heim. En ég er nú ekki að fara að vinna fyrr en á fjögur á morgun þannig að núna hef ég tíma:)

Það var geeeðveikt á gufuskálum:) skemmtum okkur mjög vel allan tímann, eða allavega ég:) gerðum ýmislegt sniðugt, fórum í rústabjörgun, á báta, sig, í gönguferð, lærðum skyndihjálp, fórum í kassaklifur og margt fleira:D og að sjálfsögðu kynntumst við helling af skemmtilegum krökkum:D mappan mín er reyndar ennþá í bílnum hjá andra þannig að ég á eftir að adda öllu liðinu inná msn...en það kemur:)
Síðan var landsmótið í beinu frammhaldi og það var líka bara mjög fínt....mér fannst auðvitað bara æðislegt að hitta alla aftur, liljar og yngva og svona:D ég og liljar vorum meira að segja saman í hóp aftur! merkilegt!:O en það var nú samt ekki jafn gaman og á selfossi enda held ég að fátt toppi það:)

eeen allavega, ég er að fara að passa þannig að ég er farin;) bless;*


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 19:01:25 / gulla:)

....

úff, mér líður mikið betur núna!:) er búin að taka til í herberginu mínu þannig að það verður mikið auðveldara að pakka niður fyrir gufuskála....veit samt ekkert hvað ég ættla að taka með mér, nema ég veit að mamma ættlar að baka handa okkur pizzusnúða til að éta á leiðinni:) annars þá ætti ég að fara að byrja að týna draslið saman en nenni því svo rosalega ekki!
Hef í rauninni ekkert gert síðan seinast nema vinna:/ fór reyndar áðan á egs, kíkti á eitthvað fótboltamót til að hitta frændfólk, ég og snjólfur vorum nú samt aðallega hlaupandi útum víðan völl einsog lög gera ráð fyrir:)
ég verð nú samt að segja ykkur eitt rosalega fyndið, ég las nefnilega svo skemmtilega bók í gær...íslensk-enska orðabók:') ég, mamma og abba vorum semsagt að spila scrabble og þarsem við erum heldur lélegar í stafsettningu sóttum við okkur orðabók....en sumt sem stóð þar, oki kannski þurfti maður að vera þarna til að fatta brandarann þarsem að við getum varla annað en farið að hlæja ef ein byrjar, en allavega þarna stóð:

líkkistuklæði úr svörtu purpuralitu flaueli : pall   hahahaha:') svart og fjólublátt:')

gjugg (í borg) : peek-a-boo!   

haha oki kannski var þetta ekkert rosalega fyndið en við allavega skemmtum okkur mjög vel:) það voru alveg nokkur atriði í viðbót en ég bara man þau ekki núna..
hefði aldrei trúað því að það væri svona gaman að lesa orðabókina:')

heyrumst;*


» 14 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 22:21:57 / gulla:)

.....

já, finnst ykkur virkilega að maður ætti að fara að splæsa á ykkur bloggi ha?:)
ég geri bara aldrei neitt nema vinna og jáhh liggja heima í leti þannig að í rauninni hef ég ósköp lítið að segja. Verður alveg vel nóg að gera núna fram að helgi og væntanlega um helgina líka!:) vinnan, vinnan:) hugsa í peningum:D Svo eru það bara gufuskálar þarna rétt handan við hornið! vá, mér finnst skólinn bara rétt nýbúinn en samt er sumarið að verða hálfnað...
nenni eiginlega ekkert að vera að blogga...allavega ekki í augnablikinu:)
er bara hérna afþví ég ættlaði að spjalla við þráinn:$ en hann lætur bara ekkert sjá sig;)

þannig að ég held bara í háttinn:) heyrumst;*


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 21:58:46 / gulla:)

....

herðu, ég þakka góð ráð og komment en ég von að þið takið mig ekkert oft alvarlega...ég á bara mína góðu ogslæmu daga eins og allir aðrir. en ég fór til læknissins og er núna komin með svefnlyf og það á víst að laga eitthað og fékk svo líka einhverjar róandi töflur sem ég get tekið ef mér líður alveg rosalega illa en vil nú samt helst ekki þurfa að taka þær mikið...en mjög gott að vita að maður eigi þær til samt:)
ég er ansi hrædd um að næsta vika verði nú samt heldur erfið fyrir mig, verð með morgunmat á hverjum degi þannig að ég þarf að vakna klukkan sex og verð svo að vinna til allavega átta á hverju kvöldi, samt alveg með einhverjum hléum sko en þetta kemur allt í ljós:)
Svo eru gufuskálar alveg að bresta á...ég á að halda dagbók þar:) eins gott að ég muni eftir því! en annas þá er ég alvarlega að hugsa um að taka ráðinu hennar heiðu og fara að halda svona alvöru dagbók með blaði og penna...efast samt um að ég nenni því;)
en allavega þá er ég að passa....fjögur börn!:) en þau eru samt svo góð...sitja hérna alveg eins og englar;) en ég ættla að hætta núna...blogga bara stutt og oftar;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 10:24:12 / gulla:)

.....

vá, ég er svo einfaldlega að verða búin að gefast upp á sjálfri mér...verð bara að fá smá útrás. ég veit að bloggið mitt er væl en mér er bara svo nákvæmlega sama.
ég sit hérna semsagt og hef nákvæmlega ekki neitt að gera afþví ég var klukkutíma á undan tímanum og var mætt til læknir klukkan 09:40 en eki klukkan 10:40, alveg endalaust sniðugt.

Oki, flestir sem að lesa þessa síðu þekkja mig nú nokkuð vel og vita þá að ég er með kvíða og á lyfju við því....en núna er þetta komið yfir strikið. Það eru svona hvað, tveir mánuðir eða eitthvað síðan ég byrjaði á lyfjunum og ég er búin að vera að taka tvöfaldan skamt síðan 12 júní og samt er ég varla að komast í gegnum daginn. ég get fundið mér ástæðu til að kvíða fyrir ÖLLU. t.d er ég búin að bíða spennt eftir landsmóti seinustu 2 ár og svo er það núna í sumar og ég er farin að kvíða fyrir því! ásamt vinnunni í sumar og því að byrja í skólanum í haust! þetta er svo enganvegin normal!....sumir dagar eru góðir en svo þarf svo ótrúlega lítið til þess að allt sé bara gersamlega ónýtt!...

er að fara til læknis útaf þessu á eftir, vona að það komi eitthvað almennilegt útúr því:/

 varð bara að fá útrás....bless!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Landsm�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1696 dögum